Undanfarna mánuði hefur aldeilis verið
nóg að gera hjá okkur skötuhjúum. Okkar stærsta ár saman til þessa. Svona til að segja snöggt frá einhverju skulum við stikla á stóru:
01.06.2010 - Bygging hófst formlega á nýju íbúðarhúsi hér í Stormi
03.08.2010 - Edda Lind Einarsdóttir fæddist okkur loksins!
30.08.2010 - Keyptum framtíðarræktunargrip, Eir furstadóttir frá Hryggstekk.
20.10.2010 - Fluttum í nýja húsið okkar!
Í lengra máli var þetta svona:
Vorið var tiltölulega rólegt að sjálfsögðu, óþarfi að fara nánar út í hestapestina. Einari gafst því góður tími til undirbúnings 115 fermetra íbúðarhúss í Stormi (Hvammi 2). Farin var sú leið að kaupa timburhús frá HT-hús á Egilsstöðum, sem þeir skiluðu af sér fokheldu. Næstu mánuði notaði Einar svo til að innrétta húsið. Þar var góða hjálp að fá frá Benedikt pabba og fleirum, Benni sá alfarið um raflagnir og reyndist ómetanlegur á endasprettinum.
Eftir að Einar hafði platað Melanie í 8 klst. langan bíltúr á Héraðssandi þann 2. ágúst - hófust fæðingarhríðir sem stóðu stutt yfir. Eftir að Melli var færð með sjúkrabíl í Neskaupstað fæddist okkur lítill engill í ungbarnslíki á sjúkrahúsinu þar í bæ kl. 8 að morgni 3. ágúst. Við tóku nýjir og breyttir tímar, sérstaklega hjá Melanie sem hugsaði um litla barnið af sinni alkunnu ástúð :).
Einar hins vegar tók fæðingarorlofið með trompi og 2,5 mánuðum seinna var hægt að flytja inn í nýja húsið í Stormi. Hvílíkur munur. Að komast úr litla húsinu sem við leigðum á Úlfsstöðum yfir í að upplifa sjónvarpsskerm meira en 30cm frá andlitinu, við fengum nánast víðáttubrjálæði. Allt þetta í samstarfi við íbúðalánasjóð :) .
Hvað hestaheiminn varðar þá létum við úr okkar eigu fara eina þrjá geldinga - þá Hraunar frá Barkarstöðum, Egil frá Strandarhöfði og Roða frá Ásholti.
Þegar þetta var ljóst gátum við gengið frá kaupum á efnilegri meri, Eir frá Hryggstekk, við hana bindum við talsverðar vonir. Líklegast munum við eiga hana til ræktunarstarfa. Einar hefur séð um að ríða henni að mestu í haust og tekið þátt í námskeiðinu Reiðmaðurinn á henni. Melli hefur einnig séð um þetta FÍNA varðandi hana sem þarf að vera í lagi - þ.e. ýmisleg vinna í reiðgerðinu. En allavega er þarna á ferðinni meri sem við fílum bæði hvað varðar byggingu, ganglag og geðsleg. Það er því ekkert skilyrði að hún fari í 1. verðlaun til að gerast ræktunarmeri hér á Stormi. Allavega er stefnan að Einar ríði Eir áfram, eða þartil hún verður látin í hendur sýningamanni eða konu.
Ný "stefna" húsfreyjunnar á Stormi að kaupa ekki hross, nema hafa selt hross fyrir kaupum virðist vera að skila ágætis árangri - og eigum við nú færri hross en áður, og líklega betri.
Eftir áramót munum við halda áfram með tamningu á okkar fyrsta ræktaða hesti, Lektor frá Egilsstaðabæ. Svo er stefnan að taka Blátá Parkersdóttur á hús og þjálfa hana talsvert. Hún átti erfiða tíma í sumar eftir að hún missti folald undan Kjerúlf sem festist við fæðingu og kafnaði. Svo er aldrei að vita nema Edda Gaumsdóttir verði tekin lítillega á hús til undirbúnings.
Í sumar héldum við Yrju okkar undir Langholtsparts Markús, og er ljóst að við myndum "digga" meri. Annars fengum við lítinn "gelding" undan Yrju - sem var bara ekki hægt annað en að nefna Mána.
Við förum á ferðalag seinna í vetur. Melanie fer til Þýzkalands ásamt Eddu, og einni og hálfri viku síðar munu Einar og Grímur Nói hitta þær mæðgur á ný - eftir að hafa elt þær til Munchen. Kannski munum við skrifa nokkur orð hér eftir að við komum til baka.